Svæðið sem um ræðir. Ljósm. akranes.is

Kynna frumtillögur um framtíðarsýn fyrir Ægisbraut

Næstkomandi miðvikudag klukkan 17 heldur Akraneskaupstaður kynningarfund um frumtillögur að framtíðarsýn fyrir Ægisbraut. Þrjár hönnunarstofur, Basalt, Hjark og Tark, hafa nú skilað inn tillögum sínum og verða þær kynntar fyrir íbúum. Fundurinn verður haldinn í sal Grundaskóla.