Fréttir

true

Eðnukonur færðu Höfða höfðinglega gjöf

Lionsklúbburinn Eðna kom færandi hendi á hjúkrunarheimilið Höfða á Akranesi síðastliðinn miðvikudag. Fulltrúar frá líknarnefnd klúbbsins afhentu hjúkrunarsviði heimilisins seglalyftara og tvær loftdýnur að gjöf. Þá fékk dagdvöl Höfða einnig nýjar sessur. „Það er einstaklega ánægjulegt að finna þann hlýhug og velvild sem hjúkrunarheimilið Höfði nýtur í samfélaginu og eru Lionskonum færðar innilegar þakkir fyrir…Lesa meira

true

Líklega nægt neysluvatn fundið fyrir Akranes og Hvalfjarðarsveit

Undanfarin þrjú ár hafa verið boraðar tilraunaholur til leitar að neysluvatni í um 90 metra hæð yfir sjávarmáli í landi Geldingaár í Hvalfjarðarsveit. Nánar til tekið er borað skammt sunnan við hlíðar Skarðsheiðar. Það er fyrirtækið Barium ehf. sem stendur að framkvæmdinni en það á vatnsréttindin á svæðinu. Fjórar holur hafa verið boraðar á svæðinu…Lesa meira

true

Bílstjóri reyndist réttindalaus, án rekstrarleyfis og flúinn land

Bílstjóri hópferðabíls, sem valt á Snæfellsnesi í október á síðasta ári, hefur verið ákærður vegna lögbrota í tengslum við þá ökuferð. Fréttavefur RUV greinir frá og segir að Lögreglan á Vesturlandi hafi ákært manninn fyrir að aka rútu í atvinnuskyni án meiraprófs og fyrir að stunda ferðaþjónustu án þess að hafa til þess leyfi. Eins…Lesa meira

true

Um 500 starfsmenn á Heilbrigðisstofnun Vesturland

Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) var haldinn á Akranesi í liðinni viku. Einnig kom út ársskýrsla stofnunarinnar með yfirgripsmiklum upplýsingum um starfsemi ársins 2025, áherslur í starfi hennar og verkefnin framundan. „Eftirtektarverður árangur hefur náðst á ýmsum sviðum starfseminnar, t.d. hafa aldrei verið gerðar fleiri liðskiptaaðgerðir en á síðasta ári, alls 421. Markvisst hefur verið unnið…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 50 á sex mánuðum

Íbúar á Vesturlandi eru nú 18.633 og hefur fjölgað um 50 frá 1. desember síðastliðnum, eða um 0,3%. Á Akranesi fjölgaði um 25 íbúa á tímabilinu, í Snæfellsbæ um 19, í Sveitarfélaginu Stykkishólmi um 18, um 6 í Grundarfjarðarbæ, fjóra í Dalabyggð og fjóra í Borgarbyggð. Mest fækkun á tímabilinu varð í Hvalfjarðarsveit þar sem…Lesa meira

true

Dimmiterað í FSN

Útskriftarnemendur Fjölbrautaskóla Snæfellinga brugðu á leik í gær. Að þessu sinni skörtuðu nemendur íþróttabúningum í tilefni dagsins og því mátti sjá spræka íþróttagarpa víðsvegar um Grundarfjörð að leysa hinar ýmsu þrautir. Nemendur fengu svo að koma inn á kennarastofuna í ilmandi vöffluveislu hjá kennurum eins og hefð er fyrir. Útskriftin verður svo 22. maí næstkomandi…Lesa meira

true

Náðu fjórða sæti á öldungamóti í blaki

Dagana 30. apríl til 2. maí sl. var Öldungamótið í blaki haldið á Akureyri. Kvennalið frá Akranesi tók þátt og náði þar fjórða sæti. Þessar stúlkur voru: Laima Linares Hurtado, Erna Björg Guðlaugsdóttir, Sigríður Helgadóttir, Unnur Tedda Þorgrímsdóttir, Karitas Ósk Ólafsdóttir, Esther Judith Steinsson og Margaret Unger. Þá kemur fram í tilkynningu frá hópnum að…Lesa meira

true

Matarvagn hættir starfsemi á Akranesi

Ákveðið er að matarvagninn Kung fu hættir starfsemi á Akranesi á næstunni. „Öll ævintýri eiga sér upphaf og endi, og nú er komið að leiðarlokum hjá matarvagninum okkar. Við höfum ákveðið að loka Kung Fu og viljum nota tækifærið og þakka ykkur öllum kærlega fyrir samfylgdina og allar góðu stundirnar við vagninn. Við ætlum að…Lesa meira

true

1.106 fengu nýja mynd í albúmið

Fram kemur í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi að 63 ökumenn voru stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni. Hvorki fleiri né færri en 1.106 ökumenn voru myndaðir af hraðamyndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Einn ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og annar fyrir að aka yfir á rauðu…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit mun taka fullan þátt í rekstri Bókasafns Akraness

Í dag skrifuðu fulltrúar Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar undir samstarfssamning um rekstur Bókasafns Akraness. Safnið mun þar með jöfnum höndum þjóna einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit, en markmið samningsins er að veita íbúum Hvalfjarðarsveitar aðgengi að safnkosti og þjónustu safnsins. Í samningnum felst að Hvalfjarðarsveit mun greiða 10% af heildarrekstrarkostnaði safnsins auk…Lesa meira