Fréttir

true

Pakkhúsið verður á ný opið allan ársins hring

Pakkhúsið í Ólafsvík á sér langa og merkilega sögu og nú hefst nýr rekstur í því undir nafninu Pakkhúsið Saga & Kaffi. Í byrjun aprílmánaðar skrifaði Snæfellsbær undir samning við Yevheniia Korchyha um leigu á Pakkhúsinu, en hún mun hefja rekstur í húsinu á næstu vikum og ætlar að halda áfram að bjóða fólk velkomið…Lesa meira

true

Ferðafélag Snæfellsness endurvakið

Boðað hefur verið til aðalfundar í Ferðafélagi Snæfellsness fimmtudagskvöldið 7. maí næstkomandi klukkan 20:00. Fundurinn verður haldinn að Hraunhálsi í Helgafellssveit. Félagið var upphaflega stofnað árið 2009. „Þetta hófst með því að ég hringdi í Gunnar í fyrri hluta mars síðastliðins og ljáði máls á því að endurvekja starfsemi félagsins,“ segir Guðmundur Rúnar Svansson, oft…Lesa meira

true

Hraðakstur viðvarandi vandamál

Í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi kemur fram að 97 ökumenn voru stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í liðinni viku. Þá voru 549 ökumenn að auki myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Einn ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar var kærður fyrir vörslu á fíkniefnum. Fíkniefnin voru…Lesa meira

true

Sólrún Halla ráðin skólastjóri Grunnskóla Borgarness

Sólrún Halla Bjarnadóttir hefur verið ráðin skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi. Hún er með M.Ed í stjórnun menntastofnana fá Háskóla Íslands, B.Ed í íþrótta- og heilsufræðum og B.Ed í leikskólafræðum. Auk þess hefur hún lokið viðbótardiplómu á meistarastigi í menntastjórnun og matsfræði og aðra diplómu á meistarastigi í hagnýtri stærðfræði í náms- og kennslufræðum. Einnig býr…Lesa meira

true

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin – auglýsing frá sýslumanni

Sýslumaðurinn á Vesturlandi hefur birt meðfylgjandi auglýsingu vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin. Greiða má atkvæði utan kjörfundar á kjörstöðum innan umdæmisins sem hér segir: Uppstigningardag, 14. maí nk., verður opið á skrifstofum embættisins í Stykkishólmi, Borgarnesi og Akranesi milli kl. 11:00 – 13:00. Á kjördag, 16. maí nk., verður opið á þessum…Lesa meira

true

Stórleikur hjá ÍA í kvöld í Bestu deild karla

Það má búast við erfiðum leik hjá Skagamönnum þegar ÍA mætir Víkingi Reykjavík á Víkingsvellinum í 4. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn hefst kl. 19:15 í kvöld. ÍA er í 8. sæti með tvö stig en Víkingur R situr í öðru sæti með sjö stig, tveimur stigum á eftir KR sem er á…Lesa meira

true

Unnu til verðlauna í garpasundi

Opna Íslandsmeistaramótið í garpasundi fór fram dagana 24.-25. apríl í Vatnaveröld Reykjanesbæ. Kári Geirlaugsson vann til sjö gullverðlauna og setti eitt Garpamet í flokki 75-79 ára í 100m fjórsundi. Hallbera Jóhannesdóttir vann til tvennra gullverðlauna og setti tvö Garpamet í flokki 70-74 ára í 50m skriðsundi og 100m bringusundi. „Frábær áragangur hjá þeim og við…Lesa meira

true

Unga fólkið í Dalabyggð lætur til sín taka

Nemendur í 1.-3. bekk Auðarskóla í Dölum sendu Dalabyggð nýverið erindi þess efnis að það vantaði almennt betri merkingar á gangbrautir í Búðardal. Bent er á að að þau þyrftu að fara tvisvar yfir Vestfjarðaveg til þess að komast á gangbrautum yfir göturnar. Vandamálið væri að merkingar sjást ekki á Miðbrautinni. Síðastliðið haust hafði þessi…Lesa meira

true

Varað við vindstrengjum við fjöll

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að það gengur í hvassa sunnanátt um norðvestanvert landið seint í kvöld og í nótt með snörpum vindhviðum, um 35 m/s, þvert á vegi við fjöll. Þetta á til dæmis við um norðanvert Snæfellsnes, Steingrímsfjarðarheiði, Vatnsskarð og Öxnadalsheiði. Dregur svo úr vindi snemma í fyrramálið. Lesa meira

true

Salmonella í nautahakki frá Stjörnugrís

Matvælastofnun varar neytendur við nautahakki merkt Krónunni frá Stjörnugrís vegna gruns um salmonellu. Um er að ræða tvær framleiðslulotur. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði. Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotur: Vöruheiti: nautagrípahakk og blandað hakk Lotunúmer: 7014-26110 og 7017-26110 Strikamerki: 5694230203017 og 5694230203291 Framleiðandi: Stjörnugrís hf. 162 Saltvík, Kjalarnesi Dreifing: Verslanir Krónunnar.Lesa meira