
Varað við vindstrengjum við fjöll
Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að það gengur í hvassa sunnanátt um norðvestanvert landið seint í kvöld og í nótt með snörpum vindhviðum, um 35 m/s, þvert á vegi við fjöll. Þetta á til dæmis við um norðanvert Snæfellsnes, Steingrímsfjarðarheiði, Vatnsskarð og Öxnadalsheiði. Dregur svo úr vindi snemma í fyrramálið.