
Salmonella í nautahakki frá Stjörnugrís
Matvælastofnun varar neytendur við nautahakki merkt Krónunni frá Stjörnugrís vegna gruns um salmonellu. Um er að ræða tvær framleiðslulotur. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði. Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotur:
Vöruheiti: nautagrípahakk og blandað hakk
Lotunúmer: 7014-26110 og 7017-26110
Strikamerki: 5694230203017 og 5694230203291
Framleiðandi: Stjörnugrís hf. 162 Saltvík, Kjalarnesi
Dreifing: Verslanir Krónunnar.