
Allt útlit er fyrir að hvalveiðar verði að nýju stundaðar í sumar. Hafrannsóknastofnun og Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðið gaf í morgun út veiðiráðgjöf vegna veiða á langreyði. Á vertíðinni í sumar er ráðlagt að veiða megi allt að 150 langreyðar, þar af 116 dýr á veiðisvæðinu Austur-Grænland – Vestur-Ísland og 34 dýr á svæðinu Austur-Ísland – Færeyjar.…Lesa meira




