
Engin sumarvinna í boði fyrir börn í áttunda bekk
Ásþór Sædal Birgisson, foreldri 14 ára unglings á Akranesi, vekur athygli á því á FB síðu íbúa að í dag hafi foreldrum barna í 8. bekk borist bréf frá forstöðumanni Vinnuskólans hjá Akraneskaupstað. Í því kemur fram að ákveðið hafi verið að afnema vinnu í Vinnuskólanum fyrir þennan aldurshóp í sumar þar sem ekki hafi tekist að ráða nógu marga flokksstjóra til starfa. Nemendur í 9. og 10. bekk fá vinnu í Vinnuskólanum í sumar. Því fellur niður tækifæri 14 ára ungmenna til að fá að starfa í 30 klukkustundir á viku.
„Þetta er fyrsta vinnan. Þetta er fyrsta skrefið þeirra út á vinnumarkaðinn, lærdómur í að mæta á réttum tíma, taka leiðbeiningum og finna stoltið sem fylgir því að vinna fyrir eigin peningum,“ skrifar Ásþór sem er allt annað en sáttur með þessa niðurstöðu.
Fram kemur í bréfi Vinnuskólans að ástæðan fyrir þessu sé skortur sé á flokksstjórum. Ásþór spyr hvar og hvenær þessar flokksstjórastöður hafi verið auglýstar og hvort farið hafi fram markviss leit að fólki til að sinna þessum störfum. Einnig spyr hann hvort leitað hafi verið til Vinnumálastofnunar og hvort ekki væri eðlilegt að bjóða fólki á atvinnuleysisskrá þessi störf áður en tækifærin eru hreinlega tekin af börnunum.
„Það styttist í sveitarstjórnarkosningar. Við eigum að geta vænst þess að bæjaryfirvöld setji vinnu og virkni unga fólksins okkar í forgang. Að „skoða að bjóða upp á námskeið“ í stað vinnu hljómar eins og neyðarlausn sem kemur ekki í staðinn fyrir þá dýrmætu reynslu sem vinnan gefur. Ég skora á skipulags- og umhverfisráð, skóla- og frístundaráð, og þá sem sitja í brúnni núna, að finna lausn sem tryggir 8. bekkingum þessa sjálfsögðu reynslu,“ skrifaði Ásþór Sædal Birgisson.
Ekki náðist í Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóra og forstöðumann Vinnuskólans við vinnslu fréttarinnar.