Hvalskurður á plani. Ljósm. úr safni/mm

Hafró gefur út veiðiráðgjöf fyrir 150 langreyðar

Allt útlit er fyrir að hvalveiðar verði að nýju stundaðar í sumar. Hafrannsóknastofnun og Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðið gaf í morgun út veiðiráðgjöf vegna veiða á langreyði. Á vertíðinni í sumar er ráðlagt að veiða megi allt að 150 langreyðar, þar af 116 dýr á veiðisvæðinu Austur-Grænland - Vestur-Ísland og 34 dýr á svæðinu Austur-Ísland – Færeyjar. Þetta er um 28% lækkun frá fyrri ráðgjöf stofnunarinnar. Þá er ráðlagt að veiðar á hrefnu árið 2026 verði ekki meiri en 168 dýr á íslenska landgrunnssvæðinu, sem er 23% lækkun.