
Björgunarsveit æfir drónaflug. Ljósm. úr safni/mm
Leita ferðamanns í Þjórsárdal
Björgunarsveitir á Suðurlandi ásamt lögreglu og þyrlu Landhelgisgæslunnar hófu í gærkvöldi leit að erlendum ferðamanni á svæðinu í kringum Háafoss í Þjórsárdal, en án árangurs. Undir miðnætti í gærkvöldi voru svo björgunarsveitir af Vesturlandi kallaðar til aðstoðar félögum sínum á Suðurlandi og gert ráð fyrir að þær héldu til leitar í morgun. Óskað var eftir aðstoð í formi drónahópa, fjórhjóla, sexhjóla, buggybíla, leitarmanna með hunda auk aðstoðar við leitarstjórnun.