Holufylling í gangi. Ljósm. úr safni

Ástand vega sýnir dýrkeypta innviðaskuld

Mikilvægt er að vegir séu í góðu ásigkomulagi til að tryggja sem best öryggi vegfarenda. All víða um land eru vegir nú komnir að þolmörkum og miðað við tilkynningar á vef Vegagerðarinnar er mikið af holum í vegum. Unnið er mjög víða á Vesturlandi við holuviðgerðir og starfsmenn að vinna inni á vegunum. Eru vegfarendur beðnir að aka með gát og virða hraðatakmarkanir þar sem framkvæmdir standa yfir.

Á Skarðsströnd í Dölum er vegur seinfær á köflum vegnan aurbleytu og skemmda og í Dölunum er mikið um holur í vegum og hraði lækkaður víðast hvar. Varað er t.d. við steinkasti frá Bröttubrekku að Þröskuldum.

Þá eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát við Hvalstöðina í Hvalfirði vegna skemmda í ristarhliði og hraði tekinn niður í 70 km/klst. af þeim sökum.

Það er mikið verk að vinna við vegi landsins. Þjóðvegur eitt er víða allt of mjór og vegaxlir sem kvarnast hefur úr með ári hverju valda mikilli hættu við framúrakstur og þegar bílar eru að mætast. Það er á mörkunum að hringvegurinn beri 90 km hraða á klst.