
Verið að vanda sig. Texti og myndir: ISS
Þrautabraut Borgfirðings
Þrautabrautar, djús- og bjór tölt var haldið hjá hestamannafélaginu Borgfirðingi síðastliðið laugardagskvöld. Mjög skemmtileg kvöldstund og mörg mögnuð tilþrif sem sáust í brautinni. Veitt voru verðlaun fyrir bestu tilþrifin í þrautabrautinni og var það hún Þóra Ólafsdóttir sem hlaut þau eftir að hafa farið seinni ferðina í brautinni með miklum tilþrifum. Eftir að þrautabrautinni lauk var keppt í djús- eða bjór tölti. Og var það tímataka og hversu mikið magn var eftir í glasinu sem gilti til stiga. Hér fyrir neðan komu efstu þrí í hverjum flokki. Næsta laugardag verður svo haldið kvenna- og karlatölt í Faxaborg og hvetur félagið sem flesta til að mæta á pallana og hvetja sitt fólk.