Fréttir

true

Glímufólkið varði titla sína í Íslandsglímunni

Glímusamband Íslands hélt 115. Íslandsglímuna í gær og fór hún fram í nýju íþróttamiðstöðinni í Búðardal. Átta keppendur voru skráðir í karlaflokki og þrír í kvennaflokki. Keppni fór mjög vel fram og sáust margar góðar glímur. Í karlaflokki varð hlutskarpastur Hákon Gunnarsson, ÚÍA, en hann lagði alla andstæðinga sína örugglega. Kristín Embla Guðjónsdóttir, ÚÍA, varð…Lesa meira

true

Framsóknarfólk hélt kjördæmisþing sitt

Kjördæmisþing Framsóknar í Norðvesturkjördæmi fór fram í liðinni viku. Þingið samþykkti stjórnmálaályktun. Í henni er í fyrsta lagi skorað á ríkisstjórnina að hætta árásum á landsbyggðina: „Aðgerðir ríkisstjórnarinnar miða að því að þrengja að heimilunum og fyrirtækjunum. Ljóst er að kostnaður er að aukast verulega með auknum flutningskostnaði og sífelldum skattahækkunum. Brýnasta verkefnið er að…Lesa meira

true

Stærðar búrhval rak á land

Fyrir helgi kom í ljós að stóran búrhval hafði rekið á land í flæðarmálinu við Írskra brunn við Gufuskála á Snæfellsnesi. Svo virðist sem nokkuð sé síðan hvalurinn drapst. Fjölmargir hafa lagt leið sína til þess að líta augum þessa risastóru skepnu. Ekki stendur til að fjarlægja hræið úr fjörunni, heldur láta náttúruna um það.…Lesa meira

true

Íbúalistinn býður fram í Stykkishólmi

„Öflugur og fjölbreyttur hópur fólks úr samfélaginu stígur hér fram með sameiginlega sýn um sterkara samfélag, opna stjórnsýslu og ábyrga framtíðarsýn fyrir Stykkishólm,“ segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum Íbúalistans í Stykkishólmi sem býður nú fram í sveitarfélaginu. Í heild er listinn svohljóðandi: Nr. 1 Sigurður Grétar Jónasson, rafvirki Nr. 2 Rannveig Tenchi Ernudóttir, kynslóðablandari Nr.…Lesa meira

true

Miðflokkurinn kynnti framboðslista sinn í Borgarbyggð

Í gærkvöldi var listi Miðflokksins í Borgarbyggð kynntur á Hótel Vesturlandi. Listinn í heild er þannig: Nr. 1  Haukur Þór Hauksson, rekstrarhagfræðingur Nr. 2 Þórður Brynjarsson, verkamaður Nr. 3 Tinna Rut Þórarinsdóttir, hótelrekandi og hársnyrtisveinn Nr. 4 Helena Rós Helgadóttir, starfsmaður JGR umboðs og heildverslunar Nr. 5 Hafsteinn Ingi Gunnarsson, húsasmíðameistari Nr. 6 Helgi Már…Lesa meira

true

Breytingar við söfnun á rúlluplasti í Dalabyggð

Heyrúlluplast er verðmætt hráefni sem sett er í endurvinnslu en því hefur verið safnað saman í Dalabyggð með ákveðnum hætti. Nú verður breyting gerð á fyrirkomulaginu sem tekur gildi eftir 17. apríl nk. Breytingarnar snúa að frágangi plastsins til að tryggja hreinleika þess – og vegna breytinga á tækjum sem nýtt eru við söfnunina. Eftirfarandi…Lesa meira

true

Fimm framboð í boði á Akranesi

Alls verða fimm framboðslistar á kjörseðli íbúa á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Einar Gunnar Einarsson formaður kjörstjórnar staðfestir það í samtali við Skessuhorn. Kjörstjórn mun nú yfirfara lista og önnur kjörgögn og funda með umboðsmönnum listanna á sunnudaginn. Í framboði verða Framsókn með frjálsum, Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Viðreisn og Miðflokkur. Tveir síðast töldu listarnir bjóða…Lesa meira

true

Bás33.is slær í gegn

Hringrásarverslunin Bás33.is við Smiðjuvelli 32 á Akranesi fer vel af stað, að sögn Sverris Mar Smárasonar, stofnanda og eiganda verslunarinnar. „Viðtökur frá opnun síðasta miðvikudag hafa verið mjög góðar og farið fram úr mínum björtustu vonum. Það eru nú þegar komnar pantanir fram í tímann þannig að ég get ekki verið annað en ánægður með…Lesa meira

true

Að óbreyttu verður sjálfkjörið í Snæfellsbæ

Frestur til að skila inn framboðum til sveitarstjórna rann út á hádegi í dag, 10. apríl. Samkvæmt lögum er viðhaft persónukjör berist ekki framboðslisti. Sú verður raunin í Dalabyggð. Þar eru fjórir fyrrum sveitarstjórnarfulltrúar sem gátu skv. lögum skorast undan endurkjöri; þau Eyjólfur Ingvi Bjarnason, Halla Sigríður Steinólfsdóttir, Skúli Hreinn Guðbjörnsson og Þuríður Jóney Sigurðardóttir.…Lesa meira

true

Linda Björk rifar seglin í Hvalfjarðarsveit

Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit hefur tilkynnt að hún sækist ekki eftir endurráðningu í starf sveitarstjóra eftir kosningarnar í næsta mánuði. Þetta tilkynnti hún á heimasíðu sveitarfélagsins í morgun. „Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi sl. níu ár að fá að nýta starfskrafta mína í þágu Hvalfjarðarsveitar með öllu því frábæra starfsfólki sem þar…Lesa meira