Heyrúlluplast er verðmætt hráefni. Ljósm/Dalabyggð

Breytingar við söfnun á rúlluplasti í Dalabyggð

Heyrúlluplast er verðmætt hráefni sem sett er í endurvinnslu en því hefur verið safnað saman í Dalabyggð með ákveðnum hætti. Nú verður breyting gerð á fyrirkomulaginu sem tekur gildi eftir 17. apríl nk. Breytingarnar snúa að frágangi plastsins til að tryggja hreinleika þess - og vegna breytinga á tækjum sem nýtt eru við söfnunina. Eftirfarandi breytingar eru samkvæmt tilkynningu sveitarfélagsins: „Gámar verða ekki losaðir, allt plast verður að vera baggað – engir pokar leyfðir af neinni tegund. Litaflokkað í þrjá flokka. Hvítt baggað sér, svart baggað sér, grænt baggað sér. Bleikt, blátt og gult má fara með grænu.“