Framsóknarfólk hélt kjördæmisþing sitt

Kjördæmisþing Framsóknar í Norðvesturkjördæmi fór fram í liðinni viku. Þingið samþykkti stjórnmálaályktun. Í henni er í fyrsta lagi skorað á ríkisstjórnina að hætta árásum á landsbyggðina: „Aðgerðir ríkisstjórnarinnar miða að því að þrengja að heimilunum og fyrirtækjunum. Ljóst er að kostnaður er að aukast verulega með auknum flutningskostnaði og sífelldum skattahækkunum. Brýnasta verkefnið er að ná niður verðbólgu og hvetur kjördæmisþingið ríkisstjórnina að ráðast í fleiri aðgerðir sem lækka verðbólgu og auka fyrirsjáanleika í efnahagsstjórninni. Þingfundarfulltrúar hafa verulegar áhyggjur af þróun efnahagsmála enda róðurinn að þyngjast hjá heimilum kjördæmisins.“