Fréttir

true

Veðurhorfur fyrir allt landið og færð á Vesturlandi

Svo virðist að næsta lægð verði ekki eins atkvæðamikil og fyrstu spár gerðu ráð fyrir. Á Norður- og Austurlandi verður sunnan- og suðaustan 10-18 m/s og rigning eða skúrir, en bjart með köflum. Dregur úr vindi og úrkomu í kvöld. „Gengur í suðaustan 13-20 með samfelldri rigningu í nótt, fyrst suðvestantil, en suðlæg átt, 8-15…Lesa meira

true

Æfa sig í íslensku á meðan er prjónað

Símenntun Vesturlands og Fjölmenningarskóli Vesturlands hafa tekið höndum saman um að bjóða upp á námskeið sem ber heitið Prjónað á Íslensku – Knitting in Icelandic. Námskeiðið hefst á morgun, miðvikudaginn 8. apríl, og lýkur 27. maí og fer fram á miðvikudögum frá kl. 18-20. Hópur þátttakenda hittist og prjónar saman á meðan íslenskan er þjálfuð…Lesa meira

true

Dymbilmót í boccia

Mánudaginn 30. mars var haldið boccíamót í íþróttahúsinu í Borgarnesi. Skráð voru tólf lið til keppni, en ellefu mættu til leiks. Liðin voru frá Húnaþingi-vestra, Akranesi og Borgarbyggð. Keppt var í þremur riðlum, alls 18 leikir. Sigurvegarar í riðlunum kepptu svo sín á milli til úrslita. Úrslitaleikirnir þrír voru spennandi og réðust úrslit ekki fyrir…Lesa meira

true

Háspenna, dramatík og burst í bikarkeppni karla um páskana

Leikið var í 16. umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu um páskana við misgóðar aðstæður, en líkt og landsmenn fundu á eigin skinni var víða fremur rysjótt veðurfar. Þurfti því að færa áætlaða útileiki inn, þar sem því var við komið, en aðrir þurftu að gjöra svo vel að spila úti. Í síðustu umferð duttu bæði…Lesa meira

true

Töluverð hreyfing á fylgi stjórnmálaflokka í NV kjördæmi

Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup, sem gerður var fyrir Ríkisútvarpið, mælast einungis þrír flokkar með kjördæmakjörna þingmenn í Norðvesturkjördæmi. Frá síðustu könnun er stærsta breytingin sú að Sjálfstæðisflokkur bætir við sig fylgi, mælist nú með 21% fylgi og fengi tvo kjördæmakjörna þingmenn í Norðvesturkjördæmi. Samfylking mælist með 26,3% fylgi og er líkt og síðustu mánuði stærsti…Lesa meira

true

Áhugafólk um norðurljósin skapar hættu í umferðinni

Bergur Þorgeirsson í Reykholti ákvað að ráðleggingum lögreglu að skutla ættingjum sínum suður að kvöldi páskadags, í stað þess að vera á ferðinni á öðrum degi páska þegar útlit var fyrir slæmt ferðaveður. Eftir skutlið til Reykjavíkur ók hann aftur heim seint um kvöldið. Á þessari ferð varð hann vitni að óvarlegu háttarlagi ferðafólks sem…Lesa meira

true

Sunna vann til fernra silfurverðlauna

Íslandsmeistaramótið í 50 metra laug (ÍM50) fór fram um undir lok mars í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Alls tóku 182 keppendur þátt frá níu félögum. Þrátt fyrir að keppendur úr Sundfélagi Akraness hafi verið færri en venjulega var árangurinn góður og stóðu keppendur sig vel. Sunna Arnfinnsdóttir var í fremstu röð í sínum keppnisgreinum og vann…Lesa meira

true

H listi kynntur til leiks í Stykkishólmi

H-listinn – listi framfarasinna í Stykkishólmi, kynnti um helgina framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Sveitarfélaginu Stykkishólmi. „Listinn er skipaður 14 öflugum einstaklingum á öllum aldri með fjölbreytta reynslu og brennandi áhuga á að vinna að bættum hag sveitarfélagsins. Björn Ásgeir Sumarliðason leiðir listann,“ segir í tilkynningu. ,,Ég vil þakka það traust sem mér og…Lesa meira

true

Fjölmörg óveðurstengd verkefni björgunarsveita í gær

Kröpp lægð gekk yfir landið í gær á öðrum degi páska með tilheyrandi vandræðum vegfarenda, húseigenda og annarra. Í samantekt frá Jóni Þór Víglundssyni upplýsingafulltrúa Landsbjargar um kvöldmatarleitið í gær fer hann yfir daginn: „Björgunarsveitir hafa sinnt margvíslegum verkefnum, mest megnis á Suðurlandi og suðvesturhorninu. Fyrir utan að sinna fjölmörgum vegalokunum voru björgunarsveitir á Hellu…Lesa meira

true

Skeldýrabætur vega þyngst í Stykkishólmi

„Á Vesturlandi skipta skeldýrabætur og línuívilnun miklu máli enda voru þær á bakvið um 13.000 tonna veiði á árunum 2020-2024.“ Þetta kemur fram í nýrri Glefsu, vefriti Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem Vífill Karlsson hagfræðingur ritar. „Það eru mikil verðmæti og afnám skeldýrabóta og línuívilnunar yrði því mikið högg fyrir útgerðir – sérstaklega á Snæfellsnesi.…Lesa meira