Það var dimmt yfir og norðan þræsingur þegar landað var úr Þórsnesi í Stykkishólmshöfn nýverið. Ekki síður er þungt yfir heimafólki vegna yfirvofandi breytinga ráðherra sem kynntar voru sama dag.

Skeldýrabætur vega þyngst í Stykkishólmi

„Á Vesturlandi skipta skeldýrabætur og línuívilnun miklu máli enda voru þær á bakvið um 13.000 tonna veiði á árunum 2020-2024.“ Þetta kemur fram í nýrri Glefsu, vefriti Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem Vífill Karlsson hagfræðingur ritar. „Það eru mikil verðmæti og afnám skeldýrabóta og línuívilnunar yrði því mikið högg fyrir útgerðir - sérstaklega á Snæfellsnesi. Ekkert sveitarfélag á landinu fangar eins mikið af botnfisktegundum með skeldýrabótum og Sveitarfélagið Stykkishólmur. Grundarfjarðarbær er þar þriðja í röðinni. Á þennan kvarða er Snæfellsbær þriðja stærsta línuívilnunarsveitarfélag landsins. Þegar vægi allra kerfanna var skoðað og hversu mikinn hlutur stóð að baki í heildarafla var Stykkishólmur efst á blaði meðal íslenskra sveitarfélaga í tilfelli skeldýrabóta. Grundarfjarðarbær og Snæfellsbær voru lægri á þennan kvarða.“