
Áhugafólk um norðurljósin skapar hættu í umferðinni
Bergur Þorgeirsson í Reykholti ákvað að ráðleggingum lögreglu að skutla ættingjum sínum suður að kvöldi páskadags, í stað þess að vera á ferðinni á öðrum degi páska þegar útlit var fyrir slæmt ferðaveður. Eftir skutlið til Reykjavíkur ók hann aftur heim seint um kvöldið. Á þessari ferð varð hann vitni að óvarlegu háttarlagi ferðafólks sem var á tveimur bílaleigubílum í vegkanti við rætur Brekkufjalls. Á þessum slóðum, en einnig við Grjóteyrarhæð og Hafnarfjall, er mjög algengt að fólk stöðvi bifreiðar sínar, slökkvi öll ljós til að upplifa norðurljósin sem sterkast. Gefum Bergi orðið: