Veðurhorfur fyrir allt landið og færð á Vesturlandi

Svo virðist að næsta lægð verði ekki eins atkvæðamikil og fyrstu spár gerðu ráð fyrir. Á Norður- og Austurlandi verður sunnan- og suðaustan 10-18 m/s og rigning eða skúrir, en bjart með köflum. Dregur úr vindi og úrkomu í kvöld. „Gengur í suðaustan 13-20 með samfelldri rigningu í nótt, fyrst suðvestantil, en suðlæg átt, 8-15 og skúrir með morgninum. Þurrt að mestu á Norðurlandi síðdegis á morgun. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast fyrir norðan,“ segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Hvalfjarðargöng verða lokuð frá og með deginum í dag til 29. maí frá kl. 21:30 til 06:00 vegna endurnýjunar á lýsingu í göngunum. Unnið verður frá sunnudegi til föstudags. Hjáleið verður um Hvalfjörð – vegnúmer 47. Ófært er á Kjósarskarðsvegi og eitthvað er um hálkubletti á Vesturlandi. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að myndast hafi mikið af holum á vegum í Dölunum og hraði tekinn niður all víða af þeim sökum. Þá er varað við steinkasti á leiðinni frá Bröttubrekku og að Þröskuldum, að Svínadal undanskildum. Að lokum má geta þess að brotholur eru á vegum víða um landið og eru ökumenn hvattir til þess að aka með gát og miða ökuhraða ætíð við aðstæður.