
Fjölmörg óveðurstengd verkefni björgunarsveita í gær
Kröpp lægð gekk yfir landið í gær á öðrum degi páska með tilheyrandi vandræðum vegfarenda, húseigenda og annarra. Í samantekt frá Jóni Þór Víglundssyni upplýsingafulltrúa Landsbjargar um kvöldmatarleitið í gær fer hann yfir daginn:
„Björgunarsveitir hafa sinnt margvíslegum verkefnum, mest megnis á Suðurlandi og suðvesturhorninu. Fyrir utan að sinna fjölmörgum vegalokunum voru björgunarsveitir á Hellu og Hvolsvelli kallaðar út til að bregðast við foktjóni nokkuð víða þar sem þakplötur og klæðing fauk af húsum. Björgunarsveitin Ok í Borgarfirði var kölluð út til að aðstoða og sinna sjúkraflutningi vegna hvassviðris og færðar.
Á Þingvöllum voru þó nokkuð margir sem komust ekki leiðar sinnar. Björgunarsveitir losuðu milli 10 og 15 bíla við Miðfell, austanvert við Þingvallavatn ásamt því að aðstoða nokkurn fjölda manns sem voru við þjónustumiðstöðina í þjóðgarðinum. Þjónustumiðstöðin var lokuð og fylgdu björgunarsveitir fólkinu til byggða. Einhverjir bílar, t.d. húsbílar voru skildir eftir þar.
Í Þrengslum og á Hellisheiði var fjöldi manns í vandræðum og þar var m.a. notaður snjóbíll Björgunarfélags Árborgar til að losa um bíla og koma fólki niður úr Þrengslunum. Þessum verkefnum sinntu björgunarsveitir í Árnessýslu, frá Þorlákshöfn og upp í uppsveitir, með aðstoð um tíma björgunarsveitar frá Reykjavík sem var í Kjósinni.
Ásamt því að losa bíla og fylgja fólki til byggða sinntu björgunarsveitir útköllum vegna foktjóns á þessu svæði einnig, ásamt því að vera klárar með tæki og mannskap til að fylgja sjúkraflutningum frá HSU til Reykjavíkur, ef á þyrfti að halda.
Á Suðurnesjum sinntu björgunarsveitir vegalokunum ásamt því að vera til taks í Grindavík vegna óvissu vegna landriss þar.
Á sjötta tímanum var Þorbjörn í Grindavík svo boðuð út til óveðursaðstoðar í bænum.
Í Kjósinni lentu nokkrir feðalangar á Kjósarskarðsvegi í vandræðum og fóru björgunarsveitir úr Reykjavík og af Kjalarnesi þeim til aðstoðar. Sú aðstoð náði svo aðeins yfir Mosfellsheiðina þegar Hjálparsveit Skáta í Reykjavík hélt til aðstoðar sveitum á Suðurlandi á Þingvöllum, enda svo sem stutt að fara úr Kjósarskarðinu.
En veðrið hafði víðar áhrif og var björgunarsveitin Stefán á Mývatni boðuð út til að aðstoða að minnsta kosti sjö bíla sem sátu fastir við Biskupsháls, um 50 km. austan Mývatns.
Allar björgunarsveitir í Eyjafirði voru svo ræstar út í samræmi við viðbragðsáætlun um flugslys á Akureyrarflugvelli þegar einkaþota í flugtaki varð fyrir vélarbilun og snéri við til öryggislendingar. Vélin lenti heilu og höldnu rétt um kl. 16:20.
Björgunarsveitir á Tálknafirði og Bíldudal voru boðaðar út vegna nokkurra bíla sem sátu fastir á Hálfdán, um 10 manns voru flutt niður af fjallveginum annars vegar á Tálknafjörð og hins vegar á Bíldudal.
Og nú þegar þessi póstur var ritaður um kl. 19 var verið að boða út björgunarsveitina Suðurnes vegna yfirvofandi foktjóns í Reykjanesbæ.“