
H listi kynntur til leiks í Stykkishólmi
H-listinn - listi framfarasinna í Stykkishólmi, kynnti um helgina framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Sveitarfélaginu Stykkishólmi. „Listinn er skipaður 14 öflugum einstaklingum á öllum aldri með fjölbreytta reynslu og brennandi áhuga á að vinna að bættum hag sveitarfélagsins. Björn Ásgeir Sumarliðason leiðir listann,“ segir í tilkynningu.
,,Ég vil þakka það traust sem mér og frambjóðendum H-listans er sýnt. Ég finn til ábyrgðar í því verkefni að leiða listann og mun leggja mig allan fram við að standa undir þeim væntingum. Þau ykkar sem þekkja mig vita að ég hef mikinn áhuga á velferð og velgengni samfélagsins. Á því verður ekki breyting, þvert á móti mun ég leggja enn meiri áherslu á að vinna að farsælli þróun þess,“ segir Björn Ásgeir.
H-listinn boðar til fundar í kvöld, þriðjudaginn 7. apríl kl. 20:00, í Vínstúkunni á Narfeyrarstofu þar sem helstu áherslumál verða kynnt og frambjóðendur kynna sig og taka samtal við íbúa.
Listinn í heild er þannig:
Nr. 1 Björn Ásgeir Sumarliðason, lögreglumaður
Nr. 2 Steinunn I. Magnúsdóttir, framhaldsskólakennari
Nr. 3 Mattías Arnar Þorgrímsson, skipstjóri
Nr. 4 Þórhildur Eyþórsdóttir, grunnskólakennari
Nr. 5 Vikoría Líf V. Ingibergsdóttir, þjónustufulltrúi Arion banka
Nr. 6 Þröstur Ingi Auðunssn, vélstjóri
Nr. 7 Jón Ragnar Daðason, tréskipasmiður
Nr. 8 Ragnar Ingi Sigurðsson, grunnskólakennari og sjálfstætt starfandi
Nr. 9 Anna Margrét Pálsdóttir, háseti
Nr. 10 Kári Geir Jensson, verkstjóri
Nr. 11 Guðbjörg Arna Evudóttir, félagsráðgjafi
Nr. 12 Marteinn Óli Þorgrímsson, sjómaður
Nr. 13 Björg Gunnarsdóttir, grunnskólakennari og fræðslustjóri FRÍ
Nr. 14 Guðmundur Kolbeinn Björnsson, vélafræðingur