Fréttir

true

Kristín Evrópumeistari og setti jafnframt heimsmet

Kristín Þórhallsdóttir varð í gær Evrópumeistari í -84 kg flokki í klassískum lyftingum á Evrópumóti sem fram fór á Möltu. Hún vann opna flokkinn og setti um leið heimsmet í aldursflokki 40-49 ára. Hún varð Evrópumeistari í samanlögðu og hnébeygju. Kristín er sem kunnugt er búsett í Borgarfirði og starfar sem dýralæknir. Á mótinu um…Lesa meira

true

Tap og sigur Vesturlandsliðanna

Vesturlandsliðin í 1. deild karla í körfunni áttu deildarleiki á föstudaginn. Skallagrímur sótti Hauka heim í Hafnarfjörðinn og reyndust gestgjafarnir ofjarlar. Haukar höfðu yfirhöndina í öllum leikhlutum og uppskáru að endingu 126 stiga sigur á móti 83 stigum Skallagríms. Á sama tíma tók Snæfell á móti Hamri í Stykkishólmi. Mun meira jafnræði var með liðunum…Lesa meira

true

ÍA fellur um deild

Það var ljóst eftir leiki síðustu viku að ÍA er fallið úr Bónusdeild karla í körfuboltanum. Þór Þorlákshöfn bar sigur úr býtum gegn Njarðvík og þar með var von Skagamanna í botnbaráttunni úti. ÍA sótti síðan Stjörnuna heim á föstudaginn. Þrátt fyrir slæma stöðu stóðu gestirnir sig með sóma í leiknum og héldu í við…Lesa meira

true

Eiríkur bauð lægst í leikskóla

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var kynnt opnunarskýrsla útboðs vegna stækkunar á leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi. Það var Karl Jóhann Haagensen hjá Eflu sem annaðist útboðið fyrir hönd Borgarbyggðar. Sjö tilboð bárust í verkið og stendur nú yfir rýni á tilboðunum. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 571,4 milljónir króna. Lægsta boð átti Eiríkur Ingólfsson ehf.…Lesa meira

true

Djúpborun á Nesjavöllum hlaut hæsta styrk

IDDP3 hlaut í gær hæsta styrk úr Loftslags- og orkusjóði, eða tæpar 310 milljónir króna. IDDP3 er þriðja djúpborunarholan sem boruð verður hér á landi og er hluti af Iceland Deep Drilling Project verkefninu, sem er samstarfsverkefni Orkuveitunnar, HS Orku, Landsvirkjunar og stjórnvalda. „IDDP er eitt metnaðarfyllsta rannsóknar- og nýsköpunarverkefni á sviði jarðhita í heiminum…Lesa meira

true

Skagafólk öflugt í landsliðinu í keilu

Kvennalandsliðið í keilu heldur til Óðinsvé í Danmörku í júní í sumar til að keppa á Evrópumóti kvenna; EWC, European Womens Championship. Þær Ágúsa Kristín Jónsdóttir og Steinunn Inga Guðmundsdóttir frá ÍA voru valdar til fararinnar en þjálfarar eru þeir Magnús Sigurjón Guðmundsson ÍA og Adam Pawel Blaszczak ÍR. Í landsliðshópnum er auk framangreindra Guðbjörg…Lesa meira

true

Gabríel Snær er þrettándi leikmaðurinn sem ÍA selur á nýliðnum árum

Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri KFÍA, segir í samtali við Skessuhorn að félagið hafi notið góðs af því að vera öflugt í að búa til efnilega leikmenn, sem síðan hafa verið seldir erlendis og það skilað félaginu umtalsverðum tekjum. „Við erum nýbúnir að samþykkja kauptilboð í Gabríel Snæ Gunnarsson til IF Elfsborg í Svíþjóð, en hann…Lesa meira

true

Skýrsla um línusvæði raflagna, eignarrétt og endurgjald

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) fengu nýverið Torfa Jóhannesson hjá Nordic Insights til að vinna samantekt um línustæði raflína, eignarrétt og endurgjald til landeigenda. Markmið með skýrslunni var að varpa ljósi á hvernig bætur fyrir lagningu raflína eru ákvarðaðar hér á landi og bera það saman við fyrirkomulag…Lesa meira

true

Erfið færð og slæmt veður í dag

Hálka og éljagangur er nú á öllum vegum á Vesturlandi. Gul viðvörun er í gildi en veðurspáin þar til í fyrramálið segir suðvestan 15-23 m/s með dimmum éljum og slæmu skyggni. Líkur á versnandi færð, einkum á fjallvegum. Varasamt ferðaveður. Einnig má búast má við hækkandi sjávarstöðu vegna áhlaðanda. Óvissustig er á flestum fjallvegum. Þæfingsfærð…Lesa meira

true

Kappahl flýtir áætlun og opnar á Akranesi á morgun

Sænska tískuvörumerkið Kappahl opnar nýja verslun við Dalbraut 1 á Akranesi á morgun, laugardag klukkan 12:00. Samhliða opna þrjár aðrar verslanir; í Krossmóa á Suðurnesjum, Glerártorgi Akureyri og á Selfossi. „Opnunin á Akranesi er hluti af næsta skrefi í innleiðingu Kappahl á íslenskan markað eftir afar vel heppnaða opnun fyrstu verslunarinnar í Smáralind, þar sem…Lesa meira