
Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunnar, Dario Ingi Di Rienzo sérfræðingur í jarðvísindum og Hera Grímsdóttir framkvæmdastýra Rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni. Ljósm. aðsend
Djúpborun á Nesjavöllum hlaut hæsta styrk
IDDP3 hlaut í gær hæsta styrk úr Loftslags- og orkusjóði, eða tæpar 310 milljónir króna. IDDP3 er þriðja djúpborunarholan sem boruð verður hér á landi og er hluti af Iceland Deep Drilling Project verkefninu, sem er samstarfsverkefni Orkuveitunnar, HS Orku, Landsvirkjunar og stjórnvalda. „IDDP er eitt metnaðarfyllsta rannsóknar- og nýsköpunarverkefni á sviði jarðhita í heiminum og hefur frá upphafi verið leiðandi í að rannsaka og prófa nýjar aðferðir til að hagnýta jarðhita við hærra hitastig en áður hefur reynst mögulegt. Sú nýting getur umbylt orkuvinnslu á Íslandi og á heimsvísu,“ segir í tilkynningu frá Orkuveitunni.