
Kristín Evrópumeistari og setti jafnframt heimsmet
Kristín Þórhallsdóttir varð í gær Evrópumeistari í -84 kg flokki í klassískum lyftingum á Evrópumóti sem fram fór á Möltu. Hún vann opna flokkinn og setti um leið heimsmet í aldursflokki 40-49 ára. Hún varð Evrópumeistari í samanlögðu og hnébeygju.
Kristín er sem kunnugt er búsett í Borgarfirði og starfar sem dýralæknir. Á mótinu um helgina lyfti hún 225 kg í hnébeygju sem er heimsmet í Master-1 flokknum, aldursflokki 40-49 ára. Í bekkpressu lyfti hún 117,5 kg og í réttstöðulyftu 225 kg. Samanlagt fóru því 567,5 kg á loft sem er einnig heimsmet í Master 1 flokki. Þetta er annar Evrópumeistaratitill Kristínar í samanlögðu því hún vann mótið árið 2021. Hún fékk silfur árið 2022 og brons 2023. Þá á hún silfurverðlaun frá heimsmeistaramótunum 2022 og 2023.