
Gabríel Snær er þrettándi leikmaðurinn sem ÍA selur á nýliðnum árum
Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri KFÍA, segir í samtali við Skessuhorn að félagið hafi notið góðs af því að vera öflugt í að búa til efnilega leikmenn, sem síðan hafa verið seldir erlendis og það skilað félaginu umtalsverðum tekjum. „Við erum nýbúnir að samþykkja kauptilboð í Gabríel Snæ Gunnarsson til IF Elfsborg í Svíþjóð, en hann er þrettándi leikmaðurinn sem ÍA hefur selt til erlendra liða á umliðnum árum. Blaðamaður spyr hvort ekki sé sárt að sjá á eftir efnilegum leikmönnum til erlendra liða? „Það skemmtilegasta við mitt starf er að sjá unga leikmenn fá að upplifa drauminn. Blessunarlega hefur okkur tekist vel til með yngri flokkana, ungir og efnilegir leikmenn koma upp yngri flokkana, bæði karla- og kvenna megin. Það fjölgar sífellt í hópi ungra stúlkna og aðsókn er ekki síðri en hjá strákunum. Til dæmis er ÍA það félag sem á flesta leikmenn með lægstan meðalaldur í efstu deildunum hér heima og þegar tilkynnt var um leikmannahóp yngri landsliða og A hóp karla á dögunum kom í ljós að ÍA á þar 13 fulltrúa. Það segir býsna mikið.“