Skagafólk öflugt í landsliðinu í keilu

Kvennalandsliðið í keilu heldur til Óðinsvé í Danmörku í júní í sumar til að keppa á Evrópumóti kvenna; EWC, European Womens Championship. Þær Ágúsa Kristín Jónsdóttir og Steinunn Inga Guðmundsdóttir frá ÍA voru valdar til fararinnar en þjálfarar eru þeir Magnús Sigurjón Guðmundsson ÍA og Adam Pawel Blaszczak ÍR.