Lóa Dagbjört og Albert Þór umboðsaðilar Kappahl og Newbie á Íslandi.

Kappahl flýtir áætlun og opnar á Akranesi á morgun

Sænska tískuvörumerkið Kappahl opnar nýja verslun við Dalbraut 1 á Akranesi á morgun, laugardag klukkan 12:00. Samhliða opna þrjár aðrar verslanir; í Krossmóa á Suðurnesjum, Glerártorgi Akureyri og á Selfossi. „Opnunin á Akranesi er hluti af næsta skrefi í innleiðingu Kappahl á íslenskan markað eftir afar vel heppnaða opnun fyrstu verslunarinnar í Smáralind, þar sem fjölmenni mætti og viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum. Áætlað er að meira en 5.000 manns hafi heimsótt verslunina á fyrstu dögum hennar. Við erum gríðarlega þakklát fyrir þær móttökur sem Kappahl hefur fengið. Það er ljóst að íslenskir viðskiptavinir kunna vel að meta samsetninguna af skandinavískri hönnun, góðum gæðum og hagkvæmu verði,“ segja hjónin Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir og Albert Þór Magnússon, umboðsaðilar Kappahl og Newbie á Íslandi.

Ný verslun fyrir Akranes og nágrenni

Með opnuninni á Akranesi verður Kappahl aðgengilegt íbúum á Vesturlandi en verslunin mun bjóða upp á fatnað fyrir alla fjölskylduna þ.e. konur, karla og börn. „Við hlökkum mikið til að opna á Akranesi og taka á móti íbúum. Markmiðið er að byggja upp öfluga verslun sem þjónar bæði heimamönnum og gestum sem eiga leið um svæðið. Verslanirnar fjórar: Á Akranesi, Selfossi, Glerártorgi og í Krossmóa – verða allar opnaðar samtímis kl. 12:00 á laugardag. Þar verður boðið upp á fjölbreytt úrval fatnaðar fyrir alla fjölskylduna frá Kappahl, auk Newbie lífstílsmerkisins fyrir börn og konur. Með þessu er í fyrsta sinn á Íslandi boðin heildstæð fjölskylduverslun þar sem fatnaður og undirfatnaður fyrir konur, karla og börn sameinast sérhæfðri Newbie-línu.

Skandinavísk gæði og sjálfbærni

Kappahl var stofnað í Svíþjóð árið 1953 og er í dag eitt af leiðandi tískuvörumerkjum á Norðurlöndum með yfir 340 verslanir í Evrópu. Í tilkynningu kemur fram að fyrirtækið leggur áherslu á sjálfbærni, meðal annars með notkun lífrænnar bómullar og ábyrga framleiðslu. Verslanir Kappahl bjóða upp á fatnað fyrir alla fjölskylduna allt frá sígildum grunnflíkum til tískufatnaðar og undirfatnaðar á hagkvæmu verði. Viðskiptavinir geta einnig keypt í gegnum netverslunina kappahl.is, sem er opin allan sólarhringinn.

„Opnunin á Akranesi er hluti af stærra uppbyggingarferli þar sem stefnt er að því að opna alls átta Kappahl-verslanir og a.m.k. eina Newbie-verslun á Íslandi á næstu misserum. Við erum rétt að byrja. Það eru spennandi tímar framundan og við hlökkum til að halda áfram að byggja upp Kappahl og Newbie sem sterk og traust vörumerki á Íslandi,“ segja þau hjón Albert og Lóa Dagbjört að lokum.

Fyrsta verslunin var opnuð í Smáralind og nú bætast fjórar við.