
Erfið færð og slæmt veður í dag
Hálka og éljagangur er nú á öllum vegum á Vesturlandi. Gul viðvörun er í gildi en veðurspáin þar til í fyrramálið segir suðvestan 15-23 m/s með dimmum éljum og slæmu skyggni. Líkur á versnandi færð, einkum á fjallvegum. Varasamt ferðaveður. Einnig má búast má við hækkandi sjávarstöðu vegna áhlaðanda.
Óvissustig er á flestum fjallvegum. Þæfingsfærð og éljagangur er nú á Svínadal.
Klukkan 9 var verið að skoða færð á Holtavörðuheiði, en hún er enn lokuð fyrir umferð. „Búist er við að ef hægt verði að opna verði færðin mjög slæm. Hægt er að fara hjáleið um Laxárdalsheiði og Heydal en þar er vegurinn mjög slæmur og vatn rennur yfir veg.
Brattabrekka er ófær og ekki hægt að opna fyrr en búið er að losa bíla sem þar eru fastir. Nánari upplýsingar gætu komið um kl. 10:00.
Fróðárheiði er lokuð. Vatnaleið er opin en veður er þar mjög slæmt, gengur á með hvössum éljum.