Skýrsla um línusvæði raflagna, eignarrétt og endurgjald

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) fengu nýverið Torfa Jóhannesson hjá Nordic Insights til að vinna samantekt um línustæði raflína, eignarrétt og endurgjald til landeigenda. Markmið með skýrslunni var að varpa ljósi á hvernig bætur fyrir lagningu raflína eru ákvarðaðar hér á landi og bera það saman við fyrirkomulag í nágrannalöndum. Skýrslan er liður í því að efla umræðu um réttindi landeigenda, hagsmuni sveitarfélaga og uppbyggingu orkuflutningskerfisins í framtíðinni.