Fréttir

true

Brjálað veður á heiðinni og Heiðar til aðstoðar

Undanfarna tvo daga hefur gert slæmt veður og færð á Holtavörðuheiði. Ökumenn hafa þrátt fyrir vafasamar aðstæður lagt á heiðina. Björgunarsveitin Heiðar, sem kennd er við Hrein Heiðar Árnason sem varð úti á heiðinni við smalamennskur í september 1972, er jafnan send á vettvang ef koma þarf vegfarendum á heiðinni til aðstoðar. Á fimmtudag og…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin töpuðu sínum leikjum

Þrír leikir fóru fram í 1. deild karla í körfubolta í gærkvöldi. Í tveimur þeirra komu liðin af Vesturlandi við sögu. Snæfell sótti Fjölni heim. Fyrstu hrinuna unnu gestirnir með 29 stigum gegn 27, en eftir það sáu þeir vart til sólar. Önnur hrina var Fjölnismanna sem unnu hana 41-17 og þriðju hrinuna 29-16. Lokahrinan…Lesa meira

true

Varað við norðaustan snjókomu og skafrenningi

Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir spásvæðin Breiðafjörð, Norðurland vestra og Vestfirði frá því í fyrramálið og fram til kl. 20 annað kvöld. Við Breiðafjörð verður norðaustan 15-23 m/s og skafrenningur eða snjókoma með köflum. Slæmt skyggni og líkur á versnandi færð. „Erfið akstursskilyrði og blint í stórhríð á Vestfjörðum á morgun, þá sérstaklega…Lesa meira

true

Mikil aflaaukning á milli ára hjá Grundarfjarðarhöfn – myndasyrpa

Landaður afli hefur aukist töluvert í Grundarfirði á milli ára. Netabátar hafa gert út frá Grundarfirði á vertíðinni auk heimabátanna sem gera út allt árið. Þá hefur töluverður fjöldi skipa komið inn til Grundarfjarðar til löndunar frá áramótum. Landaður afli í janúar 2025 var tæp 1.900 tonn miðað við rétt rúmlega 2.900 tonn í ár.…Lesa meira

true

Amma Andrea færði Mæðrastyrksnefnd páskaegg

Mæðrastyrksnefnd Akraness heldur árlega páskaúthlutun sína næstkomandi þriðjudag frá húsnæði RKÍ við Kirkjubraut 12 (bakdyramegin). Mæðrastyrksnefnd glímir við húsnæðisskort og því er ekki úthlutað mat að þessu sinni. Úthlutað verður úttektarkortum í verslunum Bónuss og Krónunnar. Sem auka glaðning fá skjólstæðingar páskaegg, en þau eru gjöf frá Ömmu Andreu sem leggur þau til með afrakstri…Lesa meira