
Björgunarsveitir á ferð. Ljósm. úr safni.
Varað við norðaustan snjókomu og skafrenningi
Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir spásvæðin Breiðafjörð, Norðurland vestra og Vestfirði frá því í fyrramálið og fram til kl. 20 annað kvöld. Við Breiðafjörð verður norðaustan 15-23 m/s og skafrenningur eða snjókoma með köflum. Slæmt skyggni og líkur á versnandi færð. „Erfið akstursskilyrði og blint í stórhríð á Vestfjörðum á morgun, þá sérstaklega á fjallvegum eins og t.d. Steingrímsfjarðarheiði og Klettshálsi. Útlit fyrir áframhaldandi hríð á þeim slóðum á mánudag. Hvöss austanátt og blint í snjókomu og skafrenningi á Hellisheiði og í Þrengslum frá miðnætti og til hádegis. Snarpar vindhviður, um 35 m/s, við Hafnarfjall og á Kjalarnesi frá kl. 03 til 07 í fyrramálið, og á Snæfellsnesi síðdegis.“