
Strandamenn kjósa um sameiningu tveggja hreppa
Á hádegi síðastliðinn laugardag hófst íbúakosning um tillögu um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps á Ströndum. Kosningarnar munu standa yfir til 28. mars næstkomandi og þeir íbúar sveitarfélaganna sem náð hafa 16 ára aldri fyrir lok kosningatímabilsins mega greiða atkvæði. Kjósendur geta greitt atkvæði á kjörstöðum sem auglýstir eru á heimsíðum sveitarfélaganna eða með pósti.