
Vetur í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni
Vetrarríki norðanlands – snjóflóðahætta og ófærð
Við Breiðafjörð er í dag gul viðvörun Veðurstofunnar. Það verður norðaustan 15-23 m/s og skafrenningur eða snjókoma með köflum, úrkomumest norðantil. Slæmt skyggni og líkur á versnandi færð.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu er á Vestfjörðum og Norðurlandi (sjá nánar vef Veðurstofunnar). Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir: „Norðaustan stórhríð á Vestfjörðum í dag með tilheyrandi ófærð. Erfið akstursskilyrði og blint í hríð á utanverðum Tröllaskaga og einnig á fjallvegum á Austfjörðum eftir hádegi, t.d. Fagradal og Fjarðarheiði og fram á nótt.
Snarpar vindhviður, um 35 m/s, í Öræfum í fyrstu, við Hafnarfjall og á Snæfellsnesi eftir hádegi og fram á kvöld, og aftur snarpar vindhviður í Öræfum í kvöld.