Hinn borgfirski þjálfari Tindastóls, Arnar Guðjónsson, slær sjaldnast af kröfunum. Hér er hann að gefa leikmönnum sínum föðurlegt tiltal í leikhléi. Ljósm. karfan.is

Stólarnir völtuðu yfir Skagamenn

Karlalið ÍA í Bónusdeildinni í körfubolta tók á móti Tindastóli í gærkvöldi. Miðað við stöðu liðanna í deildinni mátti fyrirfram búast við að leikurinn yrði bakki fyrir þá gulklæddu á Jaðarsbökkum. Það reyndist og raunin. Jafnræði var þó með liðunum í fyrsta leikhluta, hvort lið gerði 23 stig. Eftir það voru það Skagfirðingarnir sem hreinlega áttu leikinn. Unnu annan leikhluta með helmings mun og gerðu eiginlega útslagið. Í hálfleik var staðan 60 stig gestanna gegn 42. Þegar yfir lauk var staðan 115 stig gegn 86. Tveir leikir eru nú eftir í deildarkeppninni. Fyrir ÍA er útlitið býsna dökkt á botni deildarinnar. Næsti leikur liðsins er úti gegn Stjörnunni nk. föstudag kl. 19:00.