Verið að hífa kör upp úr lestunum á Frosta sem landaði fimmtíu tonnum. Ljósm. tfk

Mikil aflaaukning á milli ára hjá Grundarfjarðarhöfn – myndasyrpa

Landaður afli hefur aukist töluvert í Grundarfirði á milli ára. Netabátar hafa gert út frá Grundarfirði á vertíðinni auk heimabátanna sem gera út allt árið. Þá hefur töluverður fjöldi skipa komið inn til Grundarfjarðar til löndunar frá áramótum. Landaður afli í janúar 2025 var tæp 1.900 tonn miðað við rétt rúmlega 2.900 tonn í ár. Aukningin er tæp 53%. Febrúar 2025 var rétt rúmlega 1.700 tonn miðað við 2.686 tonn í ár, eða 58%. Heildarafli í mars 2025 var rétt rúmlega 1.300 tonn en landaður afli þann 13. mars var kominn upp í 1.344 tonn þannig að töluverð aukning verður því þriðja mánuðinn í röð. Það er því mikið líf og fjör á hafnarvoginni þessa dagana eins og sést á meðfylgjandi myndum.