
Frá afhendingu 130 páskaeggja á lager Bónuss fyrr í dag. F.v. Guðbjörg Þórunn Sveinsdóttir, Sandra Björk, Sigrún Ríkharðsdóttir, Herdís Jónsdóttir og Rósa Sigurbjörnsdóttir (Lilla).
Amma Andrea færði Mæðrastyrksnefnd páskaegg
Mæðrastyrksnefnd Akraness heldur árlega páskaúthlutun sína næstkomandi þriðjudag frá húsnæði RKÍ við Kirkjubraut 12 (bakdyramegin). Mæðrastyrksnefnd glímir við húsnæðisskort og því er ekki úthlutað mat að þessu sinni. Úthlutað verður úttektarkortum í verslunum Bónuss og Krónunnar. Sem auka glaðning fá skjólstæðingar páskaegg, en þau eru gjöf frá Ömmu Andreu sem leggur þau til með afrakstri fjársöfnunar í hennar nafni. Fulltrúar Mæðrastyrksnefndar tóku í dag við eggjagjöfinni, 136 páskaeggjum frá Góu. Þau afhentu fyrir hönd Andreu, dætur hennar Guðbjörg og Sandra Björk, en sjálf var Andrea heima með flensu.