
Brjálað veður á heiðinni og Heiðar til aðstoðar
Undanfarna tvo daga hefur gert slæmt veður og færð á Holtavörðuheiði. Ökumenn hafa þrátt fyrir vafasamar aðstæður lagt á heiðina. Björgunarsveitin Heiðar, sem kennd er við Hrein Heiðar Árnason sem varð úti á heiðinni við smalamennskur í september 1972, er jafnan send á vettvang ef koma þarf vegfarendum á heiðinni til aðstoðar. Á fimmtudag og föstudag hefur fólk frá björgunarsveitinni Heiðari haft í nægu að snúast. Í seinna skiptið í gærkvöld var bókstaflega brjálað veður á Holtavörðuheiði. „Vorum kölluð út að aðstoða en aðstæður voru þannig í þetta skipið að taka þurfti bílstjóra og farþega til byggða. Núna í morgunsárið var svo skutlast með bílstjóra uppeftir,“ segir í færslu Heiðars á FB í dag. Meðfylgjandi myndir eru af síðu sveitarinnar.