Fréttir

true

Holtavörðuheiði er enn lokuð

Holtavörðuheiði er lokuð og koma næstu upplýsingar frá Vegagerðinni um klukkan 11. Þar er vont færi og margir bílar fastir. Bendir Vegagerðin á hjáleið um Laxárdalsheiði (59) og Bröttubrekku (60). Þrátt fyrir að Brattabrakka sé opin er þar þæfingur. Flughálka er með ströndinni á milli Heydalsafleggjara og Hellissands. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru víða. Varað…Lesa meira

true

Íslendingar komnir undir 80 prósent íbúa

Alls voru 84.505 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi 1. mars síðastliðinn og fjölgaði þeim um 566 eða um 0,7% frá 1. desember 2025. Í fyrsta skipti er hlutfall Íslendinga búsettra hér á landi komið undir 80%, er nú 79,5%. Mest fjölgun hefur verið á ríkisborgurum frá Rúmeníu en þeim hefur fjölgað um…Lesa meira

true

Skilvirkari sveitarfélög með skýjalausnum og gervigreind

„Sveitarfélög um land allt hafa að undanförnu unnið að einni umfangsmestu stafrænu umbreytingu til þessa en breytingin mun hafa víðtæk áhrif á bæði þjónustu og rekstur. Í samstarfi við Wise hafa fjölmörg sveitarfélög uppfært og innleitt nýjar lausnir sem nýta Microsoft skýjalausnir og gervigreind til að efla stafrænan rekstur.“ Þetta var meðal þess sem kom…Lesa meira

true

Annir hjá björgunarsveitum vegna slæmrar færðar

Búið er að boða út björgunarsveitir norðan og sunnan Holtavörðuheiðar vegna á annan tugs ferðalanga sem eru í að minnsta kosti fimm föstum bílum á heiðinni. Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að þó nokkuð hafi verið um það í dag að björgunarsveitir hafi farið til aðstoðar ferðalöngum sem fest hafa bíla sína. Á Súðavík…Lesa meira

true

Framsókn og frjálsir samþykkja framboðslista

Framboðslisti Framsóknar og frjálsra á Akranesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var kynntur og samþykktur einróma á félagsfundi Framsóknarfélags Akraness í kvöld. Sömu þrír einstaklingar skipa efstu sæti listans og skipuðu hann fyrir fjórum árum. „Á listanum er breiður hópur fólks með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífi og samfélagi bæjarins. Þar má finna fólk úr stjórnsýslu, heilbrigðisþjónustu, skólasamfélaginu,…Lesa meira

true

Gul viðvörun um allt vestanvert landið

Veðurstofan varar við veðri á spásvæðunum Faxaflóa, Breiðafirði og Vestfjörðum fram á morgun. Við Faxaflóa verður norðvestan 10-18 m/s, en staðbundið 18-23 m/s á Snæfellsnesi og fjallvegum með skafrenning og vindhviður að 35-40 m/s nærri fjöllum. Varasamt ferðaveður. Við Breiðafjörð verður norðan- og norðvestan 13-20 m/s og snjókoma eða skafrenningur með lélegu skyggni, hvassast norðantil.…Lesa meira

true

Er þetta ekki bara komið gott

Drífa Skúladóttir í Hraðbúðinni á Hellissandi hættir 1. maí eftir tæplega 40 ára kaupmennsku á Hellissandi. Þetta er eina matvöruverslunina í þorpinu en N1 ætlar að opna aðra verslun í sama húsi Drífa Skúladóttir segir það mikil forréttindi að hafa getað búið og alið upp börn á Hellissandi. Það séu engir ókostir sem fylgi smábæjarlífinu.…Lesa meira

true

Veisla hjá dragnótarbátunum

Enn berst mokafli að landi í Snæfellsbæ. Dragnótarbátar hafa gert mjög góða daga að undanförnu. Í gær var Hildur SH með 56 tonn, Saxhamar og Magnús með yfir 40 tonn, Matthías SH með um 30 tonn og Steinunn SH með 32 tonn. Sama mokið er á netabátum og landaði Bárður SH 43 tonnum, Ólafur Bjarnason…Lesa meira

true

Vitna óskað vegna íkveikju í bíl

Lögreglan á Vesturlandi óskar eftir vitnum eða upplýsingum vegna íkveikju í bifreið við Smiðjuvelli á Akranesi mánudaginn 9. mars síðastliðinn. Atvikið átti sér stað um klukkan 22:00. „Nokkur umferð var um Smiðjuvelli og Kalmansbraut á þessum tíma og eru þeir sem hafa einhverjar upplýsingar um málið beðnir um að vera í sambandi við lögreglu í…Lesa meira

true

Nýsköpunarvinnustofa framundan á Hvanneyri

Dagana 16.–17. mars nk. verður haldin tveggja daga nýsköpunarvinnustofa í Innovation Hub á Hvanneyri. „Við skoðum hvernig hugmyndir verða að raunverulegum verkefnum og sprotafyrirtækjum. Til að gera vinnuna hagnýta munum við vinna með fimm íslensk sprotafyrirtæki sem dæmi, en þátttakendur eru hvattir til að koma með sínar eigin hugmyndir til að ræða og þróa. Hugmyndir:…Lesa meira