
Framsókn og frjálsir samþykkja framboðslista
Framboðslisti Framsóknar og frjálsra á Akranesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var kynntur og samþykktur einróma á félagsfundi Framsóknarfélags Akraness í kvöld. Sömu þrír einstaklingar skipa efstu sæti listans og skipuðu hann fyrir fjórum árum. „Á listanum er breiður hópur fólks með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífi og samfélagi bæjarins. Þar má finna fólk úr stjórnsýslu, heilbrigðisþjónustu, skólasamfélaginu, atvinnulífinu og félagsstarfi, sem sameinast um vilja til að leggja sitt af mörkum til samfélagsins á Akranesi og standa vörð um áframhaldandi uppbyggingu og þróun,“ segir í tilkynningu.
„Áberandi er einnig sú sterka reynsla sem listinn byggir á. Af sex efstu sætum listans eru fjórir einstaklingar sem sátu í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili. Sú samvinna hefur reynst öflug á undanförnum árum og endurspeglar þann vilja að halda áfram að vinna saman að málefnum bæjarins af ábyrgð og festu. Framsókn og frjálsir leggja áherslu á áframhaldandi innviðauppbyggingu, ábyrga fjármálastjórnun og öfluga þjónustu við íbúa. Framundan eru stór og mikilvæg verkefni og endurspeglar listinn þann kraft, vilja, þekkingu og fjölbreytni sem þarf til að takast á við þau verkefni,“ segir í tilkynningu.
Listann skipa:
Nr. 1 Ragnar Baldvin Sæmundsson, bæjarfulltrúi
Nr. 2 Liv Åse Skarstad, bæjarfulltrúi
Nr. 3 Sædís Alexía Sigurmundsdóttir, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi
Nr. 4 Karl Jóhann Haagensen, sérfræðingur
Nr. 5 Aníta Eir Einarsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur heilsugæslu
Nr. 6 Elín Theódóra Reynisdóttir, félagsráðgjafi
Nr. 7 Björgvin Viktor Færseth, fulltrúi hjá kærunefnd útlendingamála
Nr. 8 Erla Edvardsdóttir, forstöðumaður
Nr. 9 Magni Grétarsson, byggingatæknifræðingur
Nr. 10 Erla Björg Kristjánsdóttir, stjórnandi í velferðarþjónustu
Nr. 11 Freyr Líndal Sævarsson, framkvæmdastjóri
Nr. 12 Adriana Monika Malczyk, starfsmaður í kerskála
Nr. 13 Áslaug Guðmundsdóttir, kennari
Nr. 14 Jóhannes Geir Guðnason, rekstrarstjóri
Nr. 15 Íris Petra Jónsdóttir, háskólanemi
Nr. 16 Þröstur Karlsson, vélstjóri
Nr. 17 Elsa Lára Arnardóttir, skólastjóri
Nr. 18 Hlöðver Sigurðsson, fyrrum útgerðarmaður.