Vetur í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni

Gul viðvörun um allt vestanvert landið

Veðurstofan varar við veðri á spásvæðunum Faxaflóa, Breiðafirði og Vestfjörðum fram á morgun. Við Faxaflóa verður norðvestan 10-18 m/s, en staðbundið 18-23 m/s á Snæfellsnesi og fjallvegum með skafrenning og vindhviður að 35-40 m/s nærri fjöllum. Varasamt ferðaveður.

Við Breiðafjörð verður norðan- og norðvestan 13-20 m/s og snjókoma eða skafrenningur með lélegu skyggni, hvassast norðantil. Versnandi akstursskilyrði, einkum á fjallvegum.

Í tilkynningu frá Vegagerðinnis segir að hríð verði á fjallvegum á norðvestanverðu landinu og færð getur spillst, frá Snæfellsnesi og austur að Tröllaskaga. Hvasst og blint í éljum og skafrenningi á Hellisheiði og í Þrengslum í nótt, frá kl. 22 og til kl 07. Einnig snarpar vindhviður, um 35 m/s, undir Eyjafjöllum í nótt til 09 í fyrramálið. Dregur úr vindi og ofankomu með morgundeginum.