
Björgunarsveitir vestur í Djúpi fyrr í dag. Ljósm. Landsbjörg
Annir hjá björgunarsveitum vegna slæmrar færðar
Búið er að boða út björgunarsveitir norðan og sunnan Holtavörðuheiðar vegna á annan tugs ferðalanga sem eru í að minnsta kosti fimm föstum bílum á heiðinni. Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að þó nokkuð hafi verið um það í dag að björgunarsveitir hafi farið til aðstoðar ferðalöngum sem fest hafa bíla sína.
Á Súðavík voru þó nokkur verkefni fyrir björgunarsveitina Kofra, bæði innan bæjar en líka inn í Djúpi. Á Klettshálsi voru ferðalangar í að minnsta kosti tveimur bílum í vandræðum og fór Björgunarsveitin Heimamenn frá Reykhólum og Björgunarsveitinni Lómfelli á Brjánslæk þeim til aðstoðar. Veður fer enn versnandi á SV horninu og rétt að ítreka fyrir þeim sem þurfa að vera á ferðinni að fara ekki vanbúin af stað.