Alexander Rodriguez með vænan þorsk. Ljósm. af

Veisla hjá dragnótarbátunum

Enn berst mokafli að landi í Snæfellsbæ. Dragnótarbátar hafa gert mjög góða daga að undanförnu. Í gær var Hildur SH með 56 tonn, Saxhamar og Magnús með yfir 40 tonn, Matthías SH með um 30 tonn og Steinunn SH með 32 tonn. Sama mokið er á netabátum og landaði Bárður SH 43 tonnum, Ólafur Bjarnason 27 tonnum og minnsti netabáturinn Júlli Páls 9 tonnum og tvílandaði hann. En línubátar halda að sér höndum meðan loðnan er að hrygna. Myndirnar eru teknar þegar Steinunn SH landaði í gær.