
Vetrarfærð. Ljósm. úr safni Skessuhorns
Holtavörðuheiði er enn lokuð
Holtavörðuheiði er lokuð og koma næstu upplýsingar frá Vegagerðinni um klukkan 11. Þar er vont færi og margir bílar fastir. Bendir Vegagerðin á hjáleið um Laxárdalsheiði (59) og Bröttubrekku (60). Þrátt fyrir að Brattabrakka sé opin er þar þæfingur. Flughálka er með ströndinni á milli Heydalsafleggjara og Hellissands. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru víða. Varað er við því að holur eru mjög víða í vegum.