Jóhannes Helgi Guðjónsson hjá Wise. Ljósm. aðsend

Skilvirkari sveitarfélög með skýjalausnum og gervigreind

„Sveitarfélög um land allt hafa að undanförnu unnið að einni umfangsmestu stafrænu umbreytingu til þessa en breytingin mun hafa víðtæk áhrif á bæði þjónustu og rekstur. Í samstarfi við Wise hafa fjölmörg sveitarfélög uppfært og innleitt nýjar lausnir sem nýta Microsoft skýjalausnir og gervigreind til að efla stafrænan rekstur.“ Þetta var meðal þess sem kom fram á Notendamóti Wise 2026 sem fram fór í síðustu viku, þar sem framtíð skýjalausna, gervigreindar og stafrænnar þróunar í sveitarfélögum var í brennidepli. Hátt í 200 gestir frá öllum landshlutum sóttu mótið.