Fréttir

true

Bjarki mun í vor rifa seglin í Dölum

Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri í Dalabyggð hefur ákveðið að sækjast ekki eftir endurráðningu í starf sveitarstjóra að loknum sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi. Bjarki segir í samtali við Skessuhorn að ráðningarsamningur hans gildi út maí og muni hann að óbreyttu láta af störfum þá. „Ég hef tilkynnt sveitarstjórn Dalabyggðar um þessa ákvörðun og þótti mér rétt að…Lesa meira

true

Bylur og ofankoma eftir miðnætti í kvöld

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna snjókomu frá miðnætti í kvöld og til klukkan fjögur í nótt við Faxaflóa. Það verður suðaustan 18-23 m/s og snjókoma eða slydda. Þessu fylgir eðlilega bylur, slæmt skyggni og léleg akstursskilyrði.Lesa meira

true

Þrjár hönnunarstofur frumhanna íbúðabyggð við Ægisbraut

Ákveðið hefur verið að Ægisbraut á Akranesi verði í framtíðinni íbúðabyggð og í næsta nágrenni bæði leikskóli og opið svæði. Þetta er í samræmi við gildandi aðalskipulagi Akraneskaupstaðar. Skipulags- og umhverfisráð bæjarins hefur nú samþykkt að þrjár hönnunarstofur verði fengnar til að koma með tillögur að hönnun svæðisins. Á upplýsingavef Akraneskaupstaðar segir að um sé…Lesa meira

true

Miðflokkurinn mælist nú stærstur í Norðvesturkjördæmi

Í nýjum þjóðarpúlsi Gallup um fylgi stjórnmálaflokkanna, sem gerður var fyrir Ríkisútvarpið, er hægt að brjóta fylgi niður á kjördæmin. Miðflokkurinn er nú stærstur í Norðvesturkjördæmi, með 27,2% fylgi. Samfylking mælist næst stærst í kjördæminu, með 23,8%. Báðir flokkarnir fengju tvo kjördæmakjörna þingmenn. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 15,5% fylgi í NV kjördæmi og fengi einn þingmann…Lesa meira

true

Háls,- nef- og eyrnalæknir að þjóna til borðs

Daria Peremot háls,- nef- og eyrnalæknir frá borginni Kharkiv í Úkraínu þjónar til borðs á Landnámssetrinu í Borgarnesi. Hún hefur verið hér á landi í fjögur ár en ekki getað nýtt menntun sína þrátt fyrir að hafa tekið lokaárið í læknisfræði upp á nýtt í háskólanum. Daria hefur reynt að fá að starfa sem læknir…Lesa meira

true

Þingmannsfrumvarp um grásleppuveiðar samþykkt sem lög

Til töluvert snarpra orðaskipta kom á Alþingi í gær þegar til afgreiðslu var Grásleppufrumvarpið umdeilda; þingmannafrumvarp sem Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, lagði fram. Frumvarpið var að lokum samþykkt sem lög að viðhöfðu nafnakalli. Málsmeðferðin hefur sætt harðri gagnrýni og var m.a. bent á það í umræðum á Alþingi að álit skrifstofu Alþingis væri…Lesa meira

true

Snæfell sigraði í Vesturlandsslagnum

Snæfell og Skallagrímur áttust í gær við í hreinum Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfunni. Fyrir leikinn var Skallagrímur á betri stað í stigatöflunni en heimavöllurinn var Snæfells og nýttu Hólmarar sér það. Eftir fyrsta leikhluta leiddu gestirnir úr Borgarnesi með 29 stigum gegn 24. Annar leikhluti var í járnum, en í síðustu tveimur…Lesa meira

true

Iðnaður fjórðungur verðmætasköpunar

Verðmætasköpun íslensks iðnaðar nam 1.100 milljörðum króna á síðasta ári. Það jafngildir um fjórðungi af heildarverðmætasköpun íslensks hagkerfis. „Útflutningstekjur greinarinnar námu 791 milljarði króna á því ári eða um 40% af heildar útflutningstekjum hagkerfisins. Í greininni störfuðu í fyrra 52 þúsund manns sem er nær eitt af hverjum fjórum störfum í hagkerfinu. Velta greinarinnar nam…Lesa meira

true

Tvær konur af Hvanneyri í stjórn Kvenfélagasambandsins

Formannaráðsfundur Kvenfélagasambands Íslands (KÍ) var haldinn á Hótel Vesturlandi í Borgarnesi dagana 27. – 28. febrúar. Fundinn sóttu formenn og fulltrúar þeirra héraðssambanda sem eiga aðild að KÍ. Send var út kröfuhörð ályktun til stjórnvalda varðandi stöðu heilbrigðismála á landinu. Tveir nýir fulltrúar tóku sæti í stjórn. Það voru þær Hildur Traustadóttir, frá Kvenfélaginu 19.…Lesa meira