
Enn á ný var tekist á um veiðar á grásleppu. Ljósm. mm
Þingmannsfrumvarp um grásleppuveiðar samþykkt sem lög
Til töluvert snarpra orðaskipta kom á Alþingi í gær þegar til afgreiðslu var Grásleppufrumvarpið umdeilda; þingmannafrumvarp sem Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, lagði fram. Frumvarpið var að lokum samþykkt sem lög að viðhöfðu nafnakalli. Málsmeðferðin hefur sætt harðri gagnrýni og var m.a. bent á það í umræðum á Alþingi að álit skrifstofu Alþingis væri að það sé skylda þingsins að kanna lögmæti frumvarpsins, sem þó var ekki gert. Landssamband grásleppuútgerða hafði alfarið lagst gegn frumvarpinu. Fulltrúar smærri útgerða höfðu hins vegar bent á að kvótasetning grásleppuveiða útilokaði litlar útgerðir frá veiðum og komið væri í veg fyrir nýliðun.