Þrjár hönnunarstofur frumhanna íbúðabyggð við Ægisbraut

Ákveðið hefur verið að Ægisbraut á Akranesi verði í framtíðinni íbúðabyggð og í næsta nágrenni bæði leikskóli og opið svæði. Þetta er í samræmi við gildandi aðalskipulagi Akraneskaupstaðar. Skipulags- og umhverfisráð bæjarins hefur nú samþykkt að þrjár hönnunarstofur verði fengnar til að koma með tillögur að hönnun svæðisins.