Minna magn flutt út en verðið hærra

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 27,6 milljörðum króna í janúar á þessu ári. Það er um 5% samdráttur í krónum talið frá sama mánuði í fyrra. Samdrátturinn er minni í erlendri mynt, eða 3%, þar sem gengi krónunnar var að jafnaði rúmlega 2% sterkara nú í janúar en fyrir ári. Samdráttinn má fyrst og fremst rekja til minni útflutnings í magni, en verðhækkanir á helstu afurðaflokkum vógu talsvert á móti. Þetta kemur fram í Radarnum, vefriti SFS.