Fréttir

true

Hafnarsjóður Grundarfjarðar kaupir fasteignina Nesveg 4

Fyrir helgi var skrifað undir bindandi kauptilboð þar sem Grundarfjarðarhöfn kaupir fasteignina að Nesvegi 4 í Grundarfirði. Seljandi hússins er Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf. Um er að ræða 4.786,4 fermetra atvinnuhúsnæði sem áður hýsti Hraðfrystihús Grundarfjarðar. Árið 1996 keypti Fiskiðjan Skagfirðingur, síðar FISK Seafood, húsið. Elsti hluti þess var byggður 1941, en húsið hefur verið stækkað…Lesa meira

true

Sundlaug Grundarfjarðar heit og notaleg í frostinu

Miklar frosthörkur hafa verið síðustu vikur á landinu og sumsstaðar hefur þurft að loka sundlaugum vegna frosts. Fyrir örfáum árum hefði engum dottið í hug að hafa sundlaugina í Grundarfirði opna yfir veturinn en nú er öldin önnur. Eftir að orkuskipti voru á íþróttamannvirkjum Grundarfjarðar hefur sundlaugin verið heit og notaleg þrátt fyrir kuldann. Einu…Lesa meira

true

Líkur á að álverið komist fyrr í full afköst

Í afkomutilkynningu Century aluminum, móðurfélags Norðuráls, sem gefin var út í síðustu viku, segir að nú sé áætlað að viðgerð í verksmiðjunni á Grundartanga taki styttri tíma en búist hafði verið við. Kerlínan sem verið hefur úti frá því í október síðastliðnum, verði sett í gang fyrir lok apríl og álverið muni ná fullum afköstum…Lesa meira

true

Hugur íbúa til heitis nýs sveitarfélags verður kannaður

Nefnd til undirbúnings sameiningar Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hélt sinn fyrsta fund 19. desember 2025 og hefur unnið að undirbúningi fyrir sameiningu sveitarfélaganna frá þeim tíma. Hún hefur nú sent inn erindi til innviðaráðuneytis þar sem kveðið er á um ýmsa þætti tengda undirbúningi væntanlegrar sameiningar sveitarfélaganna. Formaður nefndarinnar er Guðveig Eyglóardóttir forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar. Að…Lesa meira

true

Kettinum Marvin bjargað úr hæsta tré

Þau eru ólík verkefni slökkviliða. Í dag fór Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar í Melahverfi, en þaðan hafði hjálparbeiðni borist frá íbúa. Kötturinn Marvin var þá búinn að húka í hæstu greinum myndarlegs aspartrés í þrjár klukkustundir og gat sig hvergi hreyft. Vaskir slökkviliðsmenn komu með stiga og sóttu köttinn. Marvin var frelsinu feginn og hinn…Lesa meira

true

Fara þarf sparlega með vatn á Akranesi vegna þurrka og loðnuvinnslu

Veitur hafa sent frá sér tilkynningu til íbúa á Akranesi vegna mögulegs vatnsskorts í bænum á næstunni. Kemur það til vegna loðnuvertíðirinnar sem er fram undan á Akranesi með tilheyrandi aukningu á vatnsnotkun og óvenju langrar þurrkatíðar, sem gerir vatnsbúskap bæjarins viðkvæmari en ella. Gripið hefur t.d. verið til þess að loka Guðlaugu, náttúrulauginni við…Lesa meira

true

Settjörn við frárennsli iðnaðarhverfis

Ýmsir hafa veitt því athygli að verið er útbúa stóra gryfju við grænu iðngarðana í Flóahverfi við Akranes. Framkvæmdin er hluti af því að búa til götur og byggingarlóðir í hverfinu og samkvæmt Gissuri Þór Ágústssyni sérfræðingi hjá Veitum er um settjörn fyrir regnvatn að ræða. Hann segir að regnvatninu frá götuniðurföllum verði safnað í…Lesa meira

true

Mótfallin færslu verkefna frá heilbrigðiseftirliti

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var rætt um áformaða lagasetningu um breytingar á eftirliti með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum. Frumvarpið felur í sér að reglubundið eftirlit, sem nú er á vegum heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga, verði fært til Matvælastofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar. „Mikil hætta er að sú breyting grafi undan staðbundinni þekkingu og reynslu sem…Lesa meira

true

Langþráður sigur í höfn

Skagamenn tóku á móti Keflavík í Bónusdeildarleik í körfunni í gær. Spilað var í AvAir höllinni á Jaðarsbökkum. Eftir tapleiki svo vikum skiptir gerðist það loks að heimamenn höfðu sigur, reyndar með minnsta mun, en lokastaðan var 97-96. Hjá heimamönnum voru fimm menn sem sáu um stigaskorið. Darryl Latrell Morsell var lang atkvæðamestur með 36…Lesa meira

true

Bygging fjölnota íþróttahúss á undan áætlun

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var farið yfir uppfærða áætlun um greiðsluflæði og afhendingu nýs fjölnota íþróttahúss – knatthúss við Skallagrímsvöll í Borgarnesi. Fram kemur í fundargerð að vinna við húsið gangi vel og mun hraðar heldur en áætlun gerði ráð fyrir. Húsið verður því afhent 1. júní næstkomandi, eða þremur mánuðum fyrr en…Lesa meira