Um talsverða framkvæmd er að ræða við Akrafjallsveg, eins og sést á myndinni. Ljósm. mm.

Settjörn við frárennsli iðnaðarhverfis

Ýmsir hafa veitt því athygli að verið er útbúa stóra gryfju við grænu iðngarðana í Flóahverfi við Akranes. Framkvæmdin er hluti af því að búa til götur og byggingarlóðir í hverfinu og samkvæmt Gissuri Þór Ágústssyni sérfræðingi hjá Veitum er um settjörn fyrir regnvatn að ræða. Hann segir að regnvatninu frá götuniðurföllum verði safnað í lagnakerfi sem kallast regnvatnskerfi. Vatnið rennur eftir lagnakerfi út í þessa settjörn þar sem það safnast fyrir og er síðan miðlað út í Flæðilækinn sem liggur niður með félagsheimili hestamanna og þaðan í Blautós. Gissur segir að settjörnin verði stórt og mikið mannvirki sem Veitur leggi mikinn metnað í að verði til prýði í umhverfinu við verklok.