
Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. mm
Mótfallin færslu verkefna frá heilbrigðiseftirliti
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var rætt um áformaða lagasetningu um breytingar á eftirliti með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum. Frumvarpið felur í sér að reglubundið eftirlit, sem nú er á vegum heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga, verði fært til Matvælastofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar.